Nú erum við á Ölduvík að vinna með fiskaþema. Við byrjuðum á því að fara í heimsókn í fiskbúðina Vegamót í síðustu viku.
Þar fengum við að sjá fullt af fiskum, meðal annars risastóra lúðu. Við fengum líka að smakka harðfisk. Krakkarnir eru búnir að læra mikið um fiskana og þekkja orðið flókna fiskalíffræði og nöfn á skrítnum fiskahlutum t.d. eyruggi og bakuggi og voru dugleg að svara spurningum í fiskbúðinni.
Við fengum að gjöf fjórar rauðsprettur til að taka með okkur heim á leikskólann. Við fengum þær þó ekki til að hafa í matinn, heldur til að mála með. Strax sama dag og daginn eftir var setið úti á stétt og málað rauðsprettur í öllum regnbogans litum. Þegar fiskurinn þótti tilbúinn var sett blað yfir og látið fiskinn þrykkjast yfir á blaðið svo eftir var frábært fiskalistaverk, nákvæm eftirmynd rauðsprettunnar.
Í dag fórum við svo í vettvangsferð í Vesturbæjarlaug að skoða nýja fiskabúrið í anddyrinu. Þar voru margar tegundir af litlum fiskum og voru þeir furðulegt nokk mjög líkir stóru fiskunum þrátt fyrir að vera aðeins litríkari og voru líka með bakugga og sporð. Sumir krakkanna höfðu þó jafnvel enn meiri áhuga á að skoða öðruvísi dýr sem voru bakvið stóra glerið í vatninu þar, í allskonar sundfötum í sundlaug, heitum potti og rennibraut.
Eftir heimsóknina í Vesturbæjarlaug fórum við svo í heimsókn á leikskólann Ægisborg og fengum að leika í garðinum þar.
Á morgun, þriðjudaginn 29. júní ætlum við svo að fara í Húsdýragarðinn. Þar ætlum við að skoða dýrin og alveg sérstaklega sjávardýrin! Svo ætlum við líka að leika og hafa það gott í garðinum og grilla pylsur þar.