| Námsskrá Grandaborgar 2009-2010 |
|
|
|
|
Á grunni Aðalnámskrá leikskólanna var leikskólum gert skylt að semja skólanámskrá í anda nýrrar skólastefnu. Þessi námskrá var ætluð til að styrkja og móta skilvirkt starf í leikskólanum, jafnt sem innihalda ákveðna uppeldisstefnu sem og námsáætlun sem ætluð er til lengri eða skemmri tíma (Aðalnámskrá leikskóla 1999:5,35). Leikskólinn flokkast undir fyrsta skólastigið og því er námskrá mikilvæg þar sem stefnt er að eðlilegri samfellu og stíganda á námsleið barnanna. Samkvæmt Aðalnámskrá leikskólanna á námskrá að vera eins konar leiðarvísir fyrir alla þá sem vinna að uppeldi og menntun barna í leikskólum. Einnig á námskráin að vera sveigjanlegur rammi utan um þau störf sem unnin eru í leikskólanum. Námskráin á einnig að nýtast foreldrum í upplýsingaleit, hvort sem um er að ræða í tengslum við barnið, starf þess í leikskólanum eða starf kennara þess (Aðalnámskrá leikskóla 1999:5). Námskráin byggist upp á vissum uppeldistengdum þáttum, auk þess að byggja á áhuga barnanna, reynslu þeirra, daglegu lífi og nánasta umhverfi (Aðalnámskrá leikskóla 1999:35).
Til þess að kynna sér betur námskrá Grandaborgar er hægt að lesa hana í heild sinni á pdf formi hér fyrir neðan.
Námsskrá Grandaborgar 2009-2010
|