Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Velkomin í leikskólann Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Aðlögun

Að byrja á leikskóla er stórt skref og ný reynsla bæði fyrir foreldra og barn. Mikilvægt er að vel sé staðið að aðlöguninni strax í upphafi.
Góð aðlögun getur haft afgerandi þýðingu fyrir alla leikskólagöngu barnsins.

Á meðan á aðlögun stendur, er mikilvægt að foreldrar kynnist starfsfólki á deildinni og kynni sér starfsemi og dagskipulag leikskólans.  

Góð samvinna foreldra og starfsfólks leikskólans er mikilvægur þáttur í starfsemi leikskólans. Börnin eru fljót að skynja ef samvinna foreldra og skóla er ekki í góðu lagi og það hefur áhrif á líðan barnsins.


Starfsfólk leggur áherslu á góð dagleg samskipti við foreldra. Við biðjum ykkur endilega að ræða við starfsmenn ef þið eruð í vafa um eitthvað, eða hafið einhverjar spurningar eða athugasemdir.

Dagur 1.  9:30-10:30.

Barnið kemur í heimsókn á leikskólan með foreldrum, öðrum eða báðum.

Dagur 2.  9:30-10:30.

Sama og dagur 1.

Dagur 3.  9:00-10:30.

Eins og dagar 1 og 2.  Foreldrar skreppa í kaffi í umþb, 10 mín.

Dagur 4.   8:30-10:45. (Byrjar í morgunmat)

Barnið kemur í morgunmat, foreldrar eru með barninu í matnum, kveðja svo í litlasal eftir 5-10 mín.

Sækja síðan barnið kl: 10:45.Gott væri að gera vistunarsamning við leikskólastjóra.

Dagur 5.  8:30-11:20. - Byrjar í hádegismat.

Barnið kemur í leikskólann, borðar morgunmat, barnið er síðan sótt kl. 11:20 eftir hádegismat.

Dagur 6.  8:30-11:20. - Mánudagur

Eins og dagur 5.

Dagur 7.   8:30-13:00?  (Byrjar í hvíld)

Barnið kemur í leikskólann, borðar morgunmat, og fer heim eftir hvíld. Við hringjum þegar barnið vaknar.

Dagur 8.   8:30-15:00.

Barnið kemur í leikskólann, og er sótt kl. 15:00.

Dagur 9.

Vistun samkvæmt vistunarsamningi.

Velkomin í leikskólann!


Við viljum taka fram að það fer allveg eftir einstaklingum hvað aðlögun tekur langan tíma, sumir þurfa styttri tíma en aðrið lengri.

Kveðjustund
.
Þegar starfsmaður tekur við barninu er gott að rétta honum barnið, kveðja stuttlega og fara út án þess að hika. 

Þó svo að þetta sé gert getur verið að barnið fari að gráta. Ef það gerist er mikilvægt að hika ekki, eða taka barnið aftur, heldur að halda sínu striki ganga út, og vinka barninu í glugganum. Foreldrum er velkomið að hringja hvenær sem er og athuga með líðan barnsins í síma 562-1855.

Hafa skal í huga að það getur komið bakslag í barnið eftir einhvern tíma, þá er mikilvægt að halda sínu striki og kveðja barnið eins og venjulega. Við vonum svo að aðlögunin gangi vel og allir séu ánægðir!

 

Hagnýtar upplýsingar!

Dvalartími
Leikskólinn er opinn frá kl.7:45 á morgnana til kl.17:15 á eftirmiðdögum

Mikilvægt er að foreldrar láta vita þegar barnið kemur í leikskólann og er sótt. Ef foreldrar eru af einhverjum orsökum seinir að sækja þá er æskilegt að það sé hringt og við látnar vita. Einnig ef einhver annar kemur og sækir barnið en getið er um á upplýsingablaði.  Síminn á Grandaborg er 562-1855

Dvalarsamningar
Þegar barnið byrjar í leikskólanum er gerður dvalarsamningur. Ef breytinga er þörf á honum er haft samband við leikskólastjóra. Foreldrar eru vinsamlegast beðnir um að virða gerðan dvalarsamning.


Matseðill
Matseðill er ákveðin einn mánuð fram í tímann. Matseðill hangir uppi í fataklefa, einnig er hægt að nálgast hann á mentor.is og prenta hann út fyrir eina viku í senn. Matseðill er gerður af matreiðslumanni í samráði við leikskólastjóra og annað starfsfólk leikskólans.

Áheyrsla er lögð á að börnin fái ávexti og grænmeti á hverjum degi. Fisk einu sinni í viku og kjöt einu sinni til tvisvar í viku. Á mánudögum er annaðhvort grjónagrautur eða skyr, brauð með áleggi og eða lifrapylsa og blóðmör. Ávextir og grænmeti er mismunandi og háð árstíðum. Vinsamlegast látið okkur vita ef það er eitthvað sem barnið má ekki borða sökum ofnæmis eða af öðrum ástæðum. Morgunmatur er frá kl. 8:00-9:00.

Morgunmatur er frá kl. 8.00 til 9.00
Ef barnið á að borða morgunmat verður það að vera komið í síðasta lagi kl. 8:45, þar sem skipulagt starf á deildum hefst kl. 9:00, og ekki er gott að miklar tafir verði á því. Einnig er gott að láta okkur vita ef barnið er búið að borða morgunmat heima eða taka lýsi.


Hádegismatur
Hádegismatur á Fjöruvík er frá kl. 11:00-11:30. Á eldri deildum er hádegismatur kl.11:45-12.30. Á töflunum við innganginn á deildarnar er spjald sem við skrifum á hvernig barnið hefur borðað og sofið. Ekki er æskilegt að foreldrar komi með barnið sitt í leikskólann á tímabilinu frá kl. ellefu til eitt, þá eru börnin að borða hádegismat og í hvíld.


Hvíld er frá 11:30-13:30
Öll börnin í leikskólanum hvíla sig  eða sofa, en það er að sjálfsögðu háð aldri og þörf hversu mikið. Tekið skal fram að ekki er æskilegt að komið sé með börnin í leikskólann á tímabilinu frá 11:00-13:30. á Fjöruvík  og 11:45-13:00 á Ölduvík og Skeljavík. 


Veikindi og aðrar fjarvistir
Við biðjum foreldra vinsamlegast að láta leikskólann vita ef barnið er veikt. Samkvæmt reglum Leikskóla Reykjavíkur þá eiga börn sem hafa verið veik að vera heima í tvo daga eftir að þau eru orðin hitalaus og þau geta verið inni í tvo daga þegar þau mæta aftur eftir veikindi. Undantekningar þarf að ræða sérstakleg við deildarstjóra. Smit og barnasjúkdóma þarf leikskólinn að tilkynna til borgarlæknis.

Það er einnig gott að vita ef barnið ykkar fer í frí hvort sem það er í einn dag eða lengur.


Lyfjagjafir
Að öllu jöfnu gefum við börnunum ekki lyf í leikskólanum. Það eru tilmæli frá borgarlækni og svo er það ekki í starflýsingu okkar.

Óhöpp og slys
Ef svo illa vill til að barnið meiði sig svo ill á leikskólanum að þörf er talin á að fara með það á slysadeild, eru foreldrar tafarlaust látnir vita svo að þeir geti farið með barnið. Ef engin töf má vera er foreldrum stefnt á Slysavarðstofu. Leikskólasvið Reykjavíkurborgar greiðir fyrstu komu á slysadeild. Að öðru leyti höfum við ávalt samband við foreldra þegar barnið meiðir sig og gefum þeim kost á að ákveða sjálfir hvort þeir koma og sæki barnið. Starfsfólk fyllir út slysaskýrslu ef barnið meiðir sig, þannig að ef eitthvað óvænt kemur í ljós síðar, þá er atvikið skrá nákvæmlega af þeim aðila sem sá atvikið eða var fyrstur á vettvang.


Fréttabréf
Fréttabréf eru send út eftir þörfum. Við sendum þau ekki út eftir neinu sérstöku kerfi, en eftir þörfum. Frá haustinu 2004 höfum við sent allar upplýsingar á netinu til þeirra foreldra sem eru með netfang.  Við prentum allt út fyrir þá sem eru ekki með netfang og hengjum í hólf barnanna. Það er nauðsynlegt að láta okkur vita ef það verða breytingar á netfangi, og símanúmerum, heima, vinnu eða gsm.


Afmælisdagar
Einu sinni í mánuði er haldið upp á afmæli fyrir alla í húsinu sem eiga afmæli þann mánuð .  Þann dag er veisla allan daginn.  Í morgunmat fáum við heitt kakó og rundstykki, síðan er farið í salinn þar syngjum við saman og afmælissöngurinn er sungin fyrir afmælisbörnin. Í hádegismat fáum við kjúkling eða lasagna og eldri börnin fá ís í eftirrétt, í síðdegishressingu fáum við svo köku.


Bleiur

Á Fjöruvík erum við með 18  börn á bleiu, þar af leiðandi getum við ekki notast við buxnableiur. Þær tefja okkur við bleiuskiptin þar sem að það þarf að klæða barnið út inniskóm, sokkabuxum og buxum til að setja bleiuna á það. Þetta á einnig við um börn á eldri deildum sem eru enn með bleiur.


Fatamerkingar
Æskilegt er að allur fatnaður sé vel merktur, sérstaklega á þetta við um útifatnað og inniskó. Ekki er hægt að ætlast til að við þekkjum allan fatnað barnanna.

Í fataklefa er umsókn fyrir fatamerkingar frá fyrirtækinu Rögn, einnig er hægt að fara á rogn.is. og panta merkimiða. Annað gott ráð til að merkja fötin er að líma heftiplástur innan í þau og skrifa á hann. Við getum ekki tekið ábyrgð á fatnaði sem er ekki merktur. 


Heimsókn frá Neskirkju
Einu sinni í mánuði kemur æskulýðsfulltrúi frá kirkjunni í heimsókn í leikskólann. Ef þið viljið ekki að barnið sé viðstatt þá vinsamlegast látið okkur vita.


Sumarleyfi

Misjafnt er hvaða háttur hefur verið hafður á varðandi sumarleyfi leikskólans undanfarin ár. Ýmist hefur verið opið allt árið eða lokað í tvær til fjórar vikur. Tilhögun sumarleyfa er því í sífelldri endurskoðun. Burtséð frá því þá er skylt að börnin  fái a.m.k. fjögurra vikna samfelt frí á sumri.


Fataklefinn
Barnið þarf ekki að koma með tösku undir aukaföt. Á hillunni fyrir ofan hólf barnsins er karfa sem er merkt barninu. Í henni eiga að vera aukaföt á barnið. Það sem við viljum að sé í körfunni stendur á miðanum sem hangir utan á henni. Við förum reglulega yfir körfurnar og merkjum við ef það vantar í þær. Annars er góður vani að koma með aukaföt strax daginn eftir, ef við höfum þurft að nota föt úr körfunni og þurrka þá út krossinn þegar búið er að fylla á. Í vikulok þarf að tæma allt úr hólfum (ekki körfunum), vegna þrifa.


Hafa ber í huga að leikskólaföt séu mjúk og þægileg og hefti ekki hreyfingar barnsins það auðveldar líka barninu í að æfa sig í bjarga sér á klósett. Einnig viljum við benda á að fötin geta orðið fyrir hnjaski, eins og málningarslettum og öðru, en við reynum eftir fremsta megni að láta það ekki koma fyrir.


Nauðsynlegt er að hafa ávalt nægilegan hlífðarfatnað með barninu, en þó ekki of mikið þar sem hólfin eru ekki mjög stór. Þetta á einnig við um skófatnað. Svo þarf að huga að því að útifötin séu rúmgóð þannig að þau hefti ekki hreyfigetu barnsins. Hér á eftir er listi yfir fatnað sem við teljum að sé nauðsynlegt að hafa.

Allt árið
regngalli/regnvettlingar
stígvél
peysa (flís eða ullar)
vettlingar
húfu
inniskó

Haust og vetur
útigalli
peysa (flís eða ullar)
lúffur, vettlinga, húfu, ullarsokka
kuldaskór  
                                                                                                  
Sumar
flíspeysu
strigaskó
vindgalla
þunna húfu
derhúfu

Í fremri og innri forstofum á Fjöruvík eru snagar sem eru merktir barninu, þar geymum við pollagallana. Í innri forstofu er líka hilla fyrir stígvélin þeirra. Þetta má skilja eftir á leikskólanum, en taka heim um helgar ef með þarf.

Ef barnið notar snuð, þurfum við að hafa eitt sem er alveg fast hérna á leikskólanum. Undir hillunni er krókur fyrir snuð sem barnið getur komið með í skólann og tekið með heim í lok dags.

Á Ölduvík og Skeljavík eru hillur fyrir skó og stígvél. Börnin ganga sjálf frá skófatnaði sínum í hillurnar

Inniskóna þeirra geymum við í kassa sem stendur á gólfinu. Við mælum með sokkainniskóm.

Ef eitthvað vantar af öðrum fatnaði t.d. útipeysu eða húfu setjum við miða í hólfið. Líka ef það vantar bleiur.

Ef þið finnið ekki útiföt frá þeim, geta þau verið í þurrkskápunum.

Tekið skal fram að af óviðráðanlegum orsökum verðum við að læsa húsinu að framanverðu kl:10:00. Ef þið komið eftir þann tíma þurfið þið að koma í gegnum garðinnLíka er hægt að hringja dyrabjöllunni, en ekki er alveg öruggt að einhver heyri í henni.


                                                                                                                                                                            
 

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
 Leikskólinn Grandaborg | Boðagranda 9 | 107 Reykjavík | s: 562 1851 og 562 1855 | Póstur | Viðburðir | Fréttir