| Leikskólinn Grandaborg |
|
|
|
|
Leikskólinn Grandaborg hóf starfsemi sína í maí árið 1985. Hann er til húsa við Boðagranda í Vesturbæ Reykjavíkur. Í næsta nágrenni við leikskólann er íþróttasvæði KR, sundlaug Vesturbæjar og Grandaskóli. Einnig er stutt í miðbæ Reykjavíkur en þar er til að mynda hægt að heimsækja endurnar á tjörninni. Það er því ekki hægt að segja annað en að leikskólinn sé vel staðsettur og auðvelt að fara í skemmtilegar göngu- og vettvangsferðir í næsta umhverfi hans. Töluverðar breytingar hafa átt sér stað í leikskólanum að undanförnu og er Grandaborg nú fjögurra deilda leikskóli þar sem 82 börn stunda nám. Leikskólinn hefur verið endurnýjaður sem og stækkaður til muna og höfum við til að mynda bætt við okkur einni deild, listaskála og sal. Þá var eldhúsið stækkað og betrumbætt til muna, sem og aðstaða starfsfólks. Útisvæði leikskólans hefur breyst í ævintýraland og erum við mjög stolt af leikskólanum okkar.
Staðsetning: Boðagrandi 9, 107 Reykjavík
Netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist.
|