|
|
Þegar barnið byrjar í leikskólanum er gerður dvalarsamningur. Ef breytinga er þörf á honum er haft samband við leikskólastjóra. Foreldrar eru vinsamlegast beðnir um að virða gerðan dvalarsamning.
|
|
|
Leikskólinn er opinn frá kl.7:45 á morgnana til kl.17:15 á eftirmiðdögum Mikilvægt er að foreldrar láta vita þegar barnið kemur í leikskólann og er sótt. Ef foreldrar eru af einhverjum orsökum seinir að sækja þá er æskilegt að það sé hringt og við látnar vita. Einnig ef einhver annar kemur og sækir barnið en getið er um á upplýsingablaði. Síminn á Grandaborg er 562-1855.
|
|
|
|
|
|
|